Stofnandi Studio 54: Hefði opnað fyrsta klúbbinn á Íslandi

Ian Schrager er risa nafn í fasteigna- og hótelgeiranum vestanhafs en löngu áður en hann setti á laggirnar hótelkeðjuna Edition, sem opnar formlega hér á landi í næsta mánuði, stofnaði hann frægasta næturklúbb allra tíma, Studio 54 í New York.

Schrager segir viðtali við helgarblað Fréttablaðsins að ef hann hefði vitað að íslensku sumarnæturnar væru svona langar hefði hann opnað fyrsta klúbbinn hér.

„Ég man eftir að hafa gengið um borgina og séð fólk standa í löngum röðum fyrir utan næturklúbba og taka jafnvel við töluverðri niðurlægingu til þess að komast inn og það gegn greiðslu. Ég hugsaði með mér að þetta væri bissness sem við ættum að taka þátt í,“ rifjar Ian upp og bætir við; „Ef ég hefði nú vitað þá hversu langar sumarnæturnar eru á Íslandi hefði ég opnað minn fyrsta klúbb þar,“ segir hann í viðtalinu.

Scrager segir frá aðdraganda þess að Studio 54 var opnaður, hvað varð til þess að hann lokaði og hvers vegna hans næstu skref voru í hótelbransanum.

Viðtalið er hægt að lesa hér í heild sinni.

Fleiri fréttir