Upp úr sauð á Alþingi í dag og var fundi slitið eftir að Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, kvað sér hljóðs og taldi 26 þingmenn í salnum. Hann sagði að þar með bryti Steingrímur J. Sigfússon, þingforseti, gegn sóttvarnarlögum og gegn lýðræðinu.
„Hann veit það ef hann er að fara setja mál á dagskrá sem ágreiningur er um, þá að sjálfsögðu mætum við þingmenn hérna og virðum lýðræðið. Samt ákvað hann að halda þessu til streitu, að halda þingfundinn og hafa dagskrána svona en hann hefur dagskrárvaldið,“ sagði Jón Þór.
Verið var að ræða samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Verði það samþykkt gefur það einkaaðilum færi á að hefja vegaframkvæmdir í skjóli hins opinbera.
„Það er ólíðandi að bjóða starfsfólki Alþingis upp á þetta , sem er komið í meiri sýkingarhættu vegna þessa, það er ólíðandi að bjóða þinginu upp á þetta, það er ólíðandi að bjóða lýðræðinu upp á þetta. Forseti þarf að afmá þessa dagskrá sem ágreiningur er uppi um og virða sóttvarnarlög,“ segir Jón.
Ríkisútvarpið hefur svo eftir Jóni að tölvupóstssendingar hefðu gengið á milli í gær vegna málsins. „Þetta vissi þingforseti að myndi gerast og ef hann vissi það ekki er hann gjörsamlega vanhæfur í starfi.“
Í samtali við Fréttablaðið í dag sagði Steingrímur vegna málsins að ekki hefði legið fyrir í upphafi fundar að svo margir yrðu í salnum. Aðeins tólf hafi verið á mælendaskrá en síðan hafi salurinn fyllst af stjórnarandstöðuþingmönnum.
Vel hafi hingað til gengið að virða samkomubann. „Það hefur gengið vel en á því varð misbrestur í morgun. Þessi fundur var settur á að ósk stjórnarandstöðunnar og ég sá ekki ástæðu til að halda honum áfram í hennar óþökk.“