Útgefandi Morgunblaðsins og mbl.is hefur stefnt ritstjóra Mannlífs og útgáfufélagi þess fyrir að skrifa fréttir upp úr minningargreinum sem hafa birst í Morgunblaðinu. Frá þessu var greint frá á vef RÚV í dag.
Þar kemur fram að Atli Viðar Þorsteinsson sé hluti af málsókninni en hann skrifaði minningargrein um bróður sinn sem birt var í Morgunblaðinu og endurbirt á vef Mannlífs sem frétt. Hann krefur Mannlíf og útgáfufélag þess um 1,5 milljónir fyrir að brjóta á höfundar-og sæmdarrétti.
Endurbirting minningargreina Morgunblaðsins var tekin fyrir af siðanefnd Blaðamannafélagsins fyrir um tveimur árum en niðurstaða nefndarinnar var sú að birtingin væri opinber og ekki brot á siðareglunum.
Á vef RÚV kemur fram að fyrirtaka verði í málinu í byrjun næsta mánaðar í Héraðsdómi Reykjaness.