Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, gerir myndaval Kastljóss á RÚV að umfjöllunarefni í færslu á Facebook. Myndavalið sé einkennilegt með tilliti til umræðuefnisins.
„Einkennilegt myndaval hjá Kastljós í umræðu um fátækt að einu myndirnar voru af Fellunum í Breiðholti. Bara Fellunum! Þó að það séu eflaust lægri tekjur í Fellunum þá er þetta að ýta undir fordóma sem er nóg af. Fátækt er víða og svo sannarlega á fleiri stöðum en í Fellunum,“ skrifar Stefanía, sem segist sjálf vera alin upp í Fellahverfinu.
„Þar býr alls konar fólk með alls konar tekjur. Þarna eru íbúðir í öllum stærðum og gerðum. Í Fellunum finnur þú íbúðir með útsýni sem fólk slefar yfir. Þú finnur ekki fjölskylduvænna hverfi. Ég gekk yfir eina götu sem var með gangbraut frá grunnskóla út menntaskóla. Held að það finnist bara í hinum enda hverfisins í Hólunum,“ skrifar hún og heldur áfram.
„“Ég er stolt af því að hafa alist upp í Fellunum og ég vona að börnin sem sáu þetta innslag og búa í Fellunum láti svona umfjöllun ekki á sig fá.“