Stefán Vagn segir að fækkun sýslumannsembætta fari ekki fram með hans samþykki

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknar og fyrrverandi lögreglumaður, segir að fækkun sýslumannsembætta, fari hún í gegn, verði ekki með hans samþykki.

Fjallað var um það fyrr í mánuðinum að dómsmálaráðherra hyggist sameina embætti sýslumanna og fækka þeim úr níu í einn. Sjá nánar hér á vef Fréttablaðsins.

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segir Stefán Vagn slíka ákvörðun og umræðu áhyggjuefni og vísar til þess að hver sýslumaður gengi veigamiklu hlutverki innan síns umdæmis.

„. Þeir þjóna sínu nærsamfélagi í mikilvægum og persónulegum málum íbúa þess hvort sem það eru þinglýsingar, gjaldþrot eða mikilvæg málefni fjölskyldna. Af þessu er augljóst að mikilvægi þess að sýslumenn séu innan handar er óumdeilt. Sýslumenn eru umboðsmenn hins opinbera í héraði. Ef þau áform sem búið er að boða yrðu að veruleika þá verður búið að eyða grundvallarhlutverki þeirra,“ segir Stefán Vagn í grein sinni.

Stefán Vagn segir að vissulega séu tækifæri og nýjungar í fjórðu iðnbyltingunni en að fækkun embættanna brjóti í bága við byggðasjónarmið.

„Fækkun embættanna hefur í för með sér neikvæð áhrif á mörg byggðarlög, þá helst utan höfuðborgarsvæðisins. Ásamt því er augljóst að atvinnutækifærum í fámennari byggðum fækkar, en það er gömul saga og ný að opinber störf hverfi af landsbyggðinni í óþökk íbúa,“ segir hann og að hann og aðrir Framsóknarmenn séu ötulir talsmenn fjölgunar starfa á landsbyggðinni og að það væri gott að flytja verkefni sem á að flytja til núverandi embætta.

„Fækkun sýslumannsembætta þvert yfir landið mun ekki verða með mínu samþykki. Hún fer gegn þeim markmiðum sem sett voru fram í stjórnarsáttmála Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Fækkunin yrði mikið högg innan ýmissa byggða þvert yfir landið,“ segir hann að lokum í greininni.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Fleiri fréttir