Stefán segir Ís­lendinga með of­næmi fyrir sam­fé­lags­kennd: „Við viljum búa í ein­býlis­húsum með stórum görðum“

„Við sitjum í flug­rútu, ég og Hófí, kærastan mín. Rútan er ágæt en ég vil ekki vera hérna. Ég vil vera í strætó. Ég tek helst strætó út um allt innan Reykja­víkur, hann er alls konar, sá lífs­­stíll, eins og vagninn sjálfur. Það var tekin á­­kvörðun um að al­­mennings­­sam­­göngur á Ís­landi skyldu vera lé­­legar, senni­­lega var það gert til þess að enginn þyrfti að upp­­lifa sig sem hluta af sam­­fé­lagi,“ svona hefst pistill uppi­standarans Stefáns Ingvars Vig­fús­sonar í Frétta­blaðinu í dag.

Ís­­lendingar eru með of­­næmi fyrir sam­­fé­lags­­kennd. Við viljum búa í ein­býlis­húsum með stórum görðum til þess að hellu­­leggja. Við viljum keyra einka­bíl í vinnuna og loka okkur af inni á skrif­­stofu og fá hvít­vínið með pósti og draga fyrir og drekka og dreyma um verslunar­manna­helgina þegar við losum um spennu og brjótum eitt­hvert drasl á tjald­­svæði norður í landi. Við viljum alla vega ekki taka strætó, hann er svo alls konar.

„Öllu jöfnu er ég nokkuð frjáls ferða minna, það er sjald­­gæft að barn­lausir, sjálf­­stætt starfandi texta­smiðir þurfi að mæta eitt­hvert. Yfir­­­leitt bíður enginn eftir mér, yfir­­­leitt skipta ferðir mínar litlu máli. Fæstar ferðir skipta raunar máli, eða það held ég. Þær eru farnar til þess að fylla upp í dagana, hafa eitt­hvað að hugsa um og baksa við. Ein­hvern veginn verðum við að lifa þessu lífi.“

„Það sem ég á við er að ég treysti strætó ekki, ég myndi ekki lána strætó pening eða biðja hann að passa köttinn minn, Lísu. Núna er eitt­hvað í húfi. Ég er að fara til Ítalíu, þar bíður mín heil þjóð fólks, sam­­fé­lag þeirra jafn­vel. Þar bíða mín kol­vetni, kaffi og traustar al­­mennings­­sam­­göngur. En ég treysti ekki strætó fyrir flugi og þess vegna sit ég í rútu þvert á vilja minn,“ skrifar Stefán að lokum.

Fleiri fréttir