Stefán mót­mælti her­æfingunni í Hval­firði: „Ekki fundum við feðgarnir neinn krækling af viti í Hval­firðinum í dag“

Sagn­fræðingurinn Stefán Páls­son og sam­tök hernaðar­and­stæðinga mættu til að mót­mæla varnar­æfingunni Norður-Víkingurinn sem fór fram á Mið­sandi í Hval­firði í dag.

Hann skrifar um ferð sína í Hval­fjörðinn á face­book.

Varnar­æfingin Norður-Víkingur 2022 fer fram á Ís­landi og á hafinu í kringum landið þessa daganna en æfingin hófst 2. apríl og lýkur og 14. apríl. Lendingar­æfing banda­rískra land­göngu­liða fer fram á Mið­sandi í innan­verðum Hval­firði í dag og taka nokkur hundruð þátt í æfingunni í dag.

Megin­­til­­gangur æfingarinnar er að æfa varnir sjó­­leiða um­­hverfis Ís­land og mikil­­vægra öryggisinn­viða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglu­bundna tví­­hliða varnar­æfingu Ís­lands og Banda­­ríkjanna með þátt­töku fleiri vina- og banda­lags­­ríkja.

Hægt er að sjá um­fjöllun Frétta­blaðsins og myndir af æfingunnihér.

Fleiri fréttir