Starfsmannagleðin endaði á salerninu

Rétt fyrir klukkan fjögur í nótt var tilkynnt um að öryggiskerfi hefði farið í gang á veitingastað í miðborginni. Þegar lögregla kom á vettvang fundu þau mann sem hafði sofnað á salerni veitingastaðarins. Hann hafði verið þar í starfsmannagleði með vinnufélögum sínum og sofnað inni á baði. Þegar hann reyndi að komast út fór öryggiskerfið í gang.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar þar sem einnig er sagt frá því að rétt eftir miðnætti voru tvær konur handteknar á hóteli í miðbænum. Þær eru grunaðar um fjársvik og voru vistaðar í fangageymslu.

Fleiri voru vistaðir í fangageymslu í nótt. Einn vegna gruns um líkamsárás og fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu og annar sem var í annarlegu ástandi.

Þá sinnti lögreglan einnig nokkrum útköllum vegna slysa. Í Garðabæ féll barn af rafskútu og var talið með opin beinbrot. Í Breiðholti féll maður í stiga og í Grafarholti var ekið á níu ára gamalt barn sem var með minniháttar áverka.

Fleiri fréttir