Stakk af frá reikningnum en gleymdi símanum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðið í gær leigubílstjóra sem að tilkynnti um farþega sem stakk af frá ógreiddum reikningi en skildi símann óvart eftir í bílnum. Samkvæmt dagbók lögreglunnar fékk farþeginn símann afhentan hjá lögreglunni og ætlaði að greiða leigubílstjóranum skuldina.

Lögreglan sinnti öðrum verkefnum í gær og í nótt en um klukkan 3.50 stöðvaði lögreglan unga stúlku, 17 ára, í hverfi 105 eftir eftirför. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að fyrst hafi hún ekki stöðvað við merkjagjöf lögreglu og svo hafi hún ekið á milum hraða og yfir gatnamót gegn rauðu ljósi.

Stúlkan stöðvaði loks bifreiðina í hverfi 108 þar sem hún var handtekin. Í bílnum voru þrír farþegar sem allir voru 16 ára. Ökumaðurinn er grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefni og var vistuð í fangageymslu.

Málið er unnið með aðkomu bæði barnaverndar og foreldra barnanna.

Fleiri fréttir