Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í Breiðholtinu hafi átta ára drengur á rafmagnshlaupahjóli orðið fyrir bíl rétt fyrir klukkan níu um kvöldið. Ökumaðurinn spurði drenginn hvort að hann væri meiddur sem að hann svaraði játandi en fór svo af vettvangi. Drenginn verkjaði í kinn, olnboga og hné. Faðir hans ætlaði með hann á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti allt 112 málum frá því klukkan 17 í gær og til fimm í nótt. Að sögn lögreglu var mikill fjöldi málanna tengdur ölvun og hávaða frá samkvæmum. Alls gistu sex aðilar í fangageymslum lögreglunnar.
Í Grafarvogi var tilkynnt um innbrot og þjófnað á heimili. Fram kemur í dagbók lögreglu að búið hafi verið að spenna upp glugga og róta í öllu og stela verðmætum á meðan húsráðendur voru erlendis. Skömmu áður en tilkynning um innbrotið barst var par handtekið í hverfinu með bakpoka og töskur grunað um þjófnað. Meðal þess sem parið var með voru gögn merkt íbúum hússins sem hafði tilkynnt innbrotið. Parið var vistað í fangageymslu.
Einn var vistaður í fangageymslu sem var í annarlegu ástandi í Mosfellsbæ og veittist að fólki.
Þá sinnti lögreglan talsverðum fjölda mála vegna ýmissa brota fólks í umferðinni svo sem að aka undir áhrifum áfengis eða vímuefna, aka án réttinda eða aka of hratt.