Stærsta á­skorun Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins til þessa

Óskar Reyk­dals­son for­stjóri Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins sagði í sér­þætti Heilsu­gæslunnar að heims­far­aldurinn sem við búum við í dag, Co­vid19, væri sannar­lega mikil á­skorun í ljósi þess að Heilsu­gæslan heldur úti mjög fjöl­breyttri þjónustu. Má þar nefna að í fyrsta lagi rekur Heilsu­gæslan 19 starfs­stöðvar á höfuð­borgar­svæðinu, sinnir heima­hjúkrun á stóru svæði innan höfuð­borgar­svæðisins, sinnir heilsu­gæslu- og geð­heil­brigðis­þjónustu í fangelsum, sinnir geð­heil­brigðis­þjónustu með geð­heil­brigði­s­teymum víðs vegar um höf­borgina og svona má lengi telja. Þetta væri fjöl­breytt og mikil starf­semi með 700 starfs­mönnum Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins og ef teknar eru með einka­reknu einningarnar má telja að það séu um eitt­þúsund starfs­menn sem eru að sinna þessari þjónustu í dag.

„Þessi mikla á­skorun hefur haft gríðar­leg á­hrif á öllum þessum stöðum. Það er alveg ó­trú­legt hvað breytingarnar hafa orðið miklar á stuttum tíma hjá okkur eins og nánast hjá öllum fyrir­tækjum á höfuð­borgara­svæðinu, alls staðar á landinu og nánast um allan heiminn eins og staðan er í dag,“ sagði Óskar og sagði einning að það hafi orðið miklar breytingar á starf­seminni.

Óskar nefndi jafn­framt að yfir­völd hér á landi hefðu tekið rétt á málunum, allar á­kvarðanir hafi verið teknar á vandaðan og yfir­vegaðan hátt og það sem væri ein­kennandi fyrir þennan far­aldur að það væru fag­legir stjórn­endur sem stýra í brúnni. Átti hann þar við þrí­eykið, sótt­varna­lækninn Þór­ólf Guðna­son, Ölmu Möller Land­lækni Víði Reynis­son yfir­lög­reglu­þjón hjá Ríkis­lög­reglu­stjóra. „Þau hafa stóran her á bak við sig sem hafa unnið ein­stak­lega fag­lega og vand­lega að öllum málum og ég held að það sé hluti af því hversu vel okkur gengur. Það sést til dæmis í því að dánar­tíðin per íbúa er sú tala sem gjarnan er notuð til að meta árangur, er lág hér,“ sagði Óskar.

Óskar sagði að allt þetta sem væri verið að gera snúist um að bjarga manns­lífum, huga að þeim sem eldri eru, þeim sem eru við­kvæmari og þeim sem minna mega sín og tryggja að þeir sýkist ekki því að þeir fara verst út úr því. Að­spurður telur Óskar að tala smitaðara haldi á­fram að hækka næstu tvær vikurnar en í fram­haldi fari að draga úr smitum. Hann er hins vegar á því að þá taki við aðrar á­skoranir sem hann hefur miklar á­hyggjur af. Nefndi hann at­vinnu­leysi, sem er mikið á­hyggju­efni eins og staðan er í dag, fé­lags­lega ein­angrun, mennta­málin, fé­lags­málin og býst fast­lega við að öll ráðu­neytin muni þurfa að bregðast við nýjum á­skorunum þegar fram í sækir.

Í ljósi breyttra tíma vegna CO­VID19 hefur nálgun fólks að heilsu­gæslunni breyst, öllum er þó sinnt en með öðrum hætti. Áður var það svo að allir gátu mætt og fengið tíma en í ljósi á­standsins hafa orðið breytingar á þjónustnni. Núna er síminn aðal­sam­skipta­leiðin og allir hafa að­gang að því að panta síma­tíma. Óskar sagði að sú þjónusta væri til staðar allan sólar­hringinn, þar sem fólk gæti hringt á sína heilsu­gæsla á dag­vinnu­tíma og bókað tíma og í síma­númerið 1700 eftir dag­vinnu­tíma. Einnig væri í boði net­spjall í gegnum síðu sem heitir www.heilsu­vera.is sem er opið allan sólar­hringin auk þess sem þar er að finna fjöldan allan af upp­lýsingum og leið­beiningum meðal annars um Co­vid19.

Að sögn Óskars er mikil fjölgun þeirra sem nýta sér þessar nýju sam­skipta­leiðir og verk­efnum innan heilsu­gæslunnar hafi fjölgað um 40%, það er að segja 40% aukning sam­skipta á þessu tíma­bili sem er gríðar­leg aukning. Mikil­vægt er að vernda heil­brigðs­starfs­fólk og þessar breyttu sam­skipta­leiðir eru að­gerðir gegn því. Sjöfn og Óskar ræddu um væntingar Óskars á þróuninni á Co­vid19 næstu daga og sagði Óskar að sínar væntingar væru þær að hér á landi næðum við að halda í þessa á­ætlun sem búið er að setja með mögu­lega bestu spá, að það verði til­tölu­lega fáir sem veikjast og okkur takist að vernda þá sem eru við­kæmari og þá sem eru eldri en erum undir­búin undir það verra.

Þegar enginn er með mót­efni fyrir veirunni þá á hún auð­veldara með að dreifa sér

Sjöfn ræddi jafn­framt um hegðun veirunnar Co­vid19 við Óskar og sagði Óskar að hegðun veirunnar væri hefð­bundin að því leyti að hún væri að hegða sér eins og veira sem ekki er þekkt í sam­fé­lögum okkar, það er að segja að ef manneskja hefur ekki smitast af veirunni er þetta svipað eins og far­aldur in­flúensu en munurinn er sá að við erum ekki með bólu­efni og það sem gerist að þegar engin er með mót­efni fyrir veirunni þá eru miklu fleiri við­kæmari og geta veikst en ella og þá dreifir hún sér víðar, fer víðar og færi frekari í þá sem eru veikari fyrir líka.

Óskar sagði að lokum að við það sem væri mikil­vægasta að gera í dag er að hægja á frekari út­breiðslu veirunnar og þá væri mikil­vægast fyrir þá sem heima eru eða á vinnu­stöðum að fara eftir því sem hefur komið mjög skýrt fram að halda fjar­lægðinni á milli okkar, huga vel að hand­þvottinum en stað­reyndin er sú að sápa eyðir veirunni og spritta á eftir og loks að vera ekki með hendurnar í and­litinu. Um­fram allt að fara eftir fyrir­mælum Al­manna­varna og eins og þekkt er orðið að hlýða Víði.

Fleiri fréttir