Spyr hvort ostur og rjómi séu mikilvægust atvinnulífinu

Valdimar Hafsteinsson, forstjóri Kjöríss og formaður Félags atvinnurekenda á Suðurlandi, segir að Vegagerðin hafi hyglað MS og mismunað öðrum fyrirtækjum. Í viðtali við Fréttablaðið í dag segir hann það alvarlega mismunun að bílar frá MS hafi fengið að fara yfir Hellisheiði í fylgdarakstri á sama tíma og aðrir komust ekki yfir og fyrirtækin í kjölfarið orðið fyrir tjóni. Hann segir ólgu hjá fyrirtækjum á Suðurlandi vegna málsins.

„Hins vegar virðist okkur sem MS, eitt fyrirtækja, hafi fengið að fara með bíla yfir heiðina á mánudeginum í fylgdarakstri,“ segir Valdimar. „Það kallast mismunum, ef rétt er. Mér finnst þetta alvarlegt mál ef Vegagerðin ætlar að halda trúverðugleika sínum. Eru ostur og rjómi mikilvægasti hluti atvinnulífsins?“

Valdimar segir að Vegagerðin eigi hrós skilið fyrir að skoða mögulegan fylgdarakstur fyrir atvinnuflutningabíla þegar mikið liggur við en eitt verði yfir alla að ganga. Ýmis fyrirtæki hafi orðið fyrir sölutjóni vegna lokunarinnar, enda um stærstu söluviku ársins að ræða.

Nánar hér á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir