Spyr hvort Logi hefði líka verið sagður hafa „toppað of snemma“

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir fjallar í nýjustu bakþönkum sínum í Fréttablaðinu um það hvað konur þurfi að gera til að vera álitnar sniðugar og skemmtilegar og hvort það sama gildi í samfélaginu um karlmenn og tekur nýleg dæmi, sem kannski sýna að svo sé ekki.

„…Aðrir kyngerva kvenkyns stjórnendur og taka þannig fókusinn af því sem þær hafa fram að færa. Nýlegt dæmi er að finna undir fyrirsögninni „Ótímabært sáðlát“, þar sem formaður stjórnmálaflokks er sögð hafa toppað of snemma. Hefði Logi Már Einarsson fengið sömu fyrirsögn?“ spyr Jóhanna í pistlinum og bendir á að sumir myndi eflaust segja að hún væri bara „erfið kona“.

„Eitraður stimpill sem dregur úr vægi alls sem hún hefur fram að færa. Týndust afrek Reynis Lyngdal og Baltasars Kormáks kannski undir fyrirsögnum af „erfiðum körlum“?“

Þá bendir hún einnig á tröllskessuna á þrettándagleði ÍBV sem var í líki Eddu Falak baráttukonu og hlaðvarpsstjórnanda.

„Vinsæll þáttastjórnandi sem gaf konum vettvang til að tjá sig um ofbeldi, er sett fram í líki tröllskessu á fjölskylduskemmtun. Það bætist við hótanir um ofbeldi. Var tröllkarlalíkneski af Gulla Helga nokkuð dregið í kringum bálköst á þrettándabrennu? Allir ofantaldir karlar eru klárir og sniðugir – og ættu aldrei svona meðferð skilið. Gefum konum líka pláss til að vera klárar og sniðugar. Hægt er að gera betur.“

Fleiri fréttir