Sprenging í Múlagöngum en ekkert í kvöldfréttum RÚV

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og fyrrverandi fjölmiðlakona, segir verulega umhugsunarvert að ekkert hafi verið fjallað um sprenginguna í Ólafsfjarðargöngum í aðal fréttatíma RÚV í kvöld.

Leyfir hún sér að efast um að ekki hefði verið fjallað um þetta alvarlega mál hefði það átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu.

Fréttablaðið greindi frá því í dag þegar fjórir voru hand­teknir vegna heima­gerðar sprengju sem sprengd var í Ólafs­fjarðar­göngum. Í til­kynningu lög­reglunnar á Norður­landi eystra segir að mikill við­búnaður hafi verið hjá þeim í vikunni og að tjón af völdum sprengingarinnar nemi milljónum króna.

Ólafsfjarðargöng eða Múlagöng eru 3,4 km einbreið veggöng gegn um Ólafsfjarðarmúla sem eystu af hólmi Múlaveginn árið 1991 og tengdi saman Dalvík og Ólafsfjörð yst á Tröllaskaga.

„Sprenging inn í samgöngumannvirki sem tengir saman byggðarlög er ótvírætt öryggismál sem varðar almannahagsmuni,“ skrifar Hilda Jana.

Fleiri fréttir