Landæknir, Sóttvarnarlæknir og Almannavarnir áttu fund með fjölmiðlafólki þar sem þau spurðu blaða og fréttamenn ráða um hvernig væri best að standa að upplýsingagjöf til almennings og ráðleggingin var klárlega: Því meiri upplýsingar, því betra. „Það kemur í veg fyrir að fólk fyllist grunsemdum um að það sé ekki verið að segja allt“, sagði Þórir Guðmundsson, fréttastjóri Stöðvar tvö í nýjasta þætti Ritstjóranna sem sýndur er 21.
Auk Þóris mætti Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi íslenskrar erfðagreiningar og ræddu þau frammistöðu teymi Landslæknis og Almannavarna.
Fór hægt af stað
„Mér fannst, og reyndar skrifaði um það að mér fannst þau fara frekar hægt af stað og svolítið óviss hvernig þau ættu að fóta sig en það breyttist mjög hratt fyrir svona tveimur vikum og síðan hefur m mér fundist í raun aðdáunarvert hvernig þau hafa höndlað þetta“, segir Þórir en að það verði ekki nein helgislepja í kringum upplýsingagjöfina hjá yfirvöldum, að við megum ekki gleyma að gagnrýna líka og á svona tímum eins og nú líka sem á öðrum tímum. En tekur undir að heilbrigðisyfirvöld hafi tekið mark á gagnrýni og staðið sig vel.
Þörfinni fyrir yfirvegaðar upplýsingar mætt
„Ég held að þau hafi staðið vel að þessu. Það truflaði mig ekki í upphafi hvernig þetta var. Ég held að maður þurfi alltaf að óttast í svona en líka óttast óttann. Þetta hefur verið gert mjög vel. Það hefur ekki verið í rauninni blásið í þá lúðra“, segir Þóra Kristín um að Landlæknisteymið hafi ekki alið á ótta fólks með sinni frammistöðu. „Það hefur ekki verið ýtt undir einhvern æsing og þessari þörf fyrir stöðugar og vandaðar upplýsingar hefur verið mætt“.