„Sorglega opinberandi um viðhorf dómsmálaráðherra til opinberra starfa“

Skot Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, á Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingarinnar, vegna hugmyndar hans um fjölgun opinberra starfa hefur vakið mikla athygli í dag og í gær. Þannig segir Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson á Facebook að pistill hennar sé sorglega opinberandi um viðhorf hennar til opinberra starfa.

Í Facebook færslu sinni segir Áslaug:

„Fræg er sag­an af því þegar Milt­on Friedm­an var á ferð um Asíu og kom að hópi manna sem voru að grafa skurð með skófl­um. Þegar hann spurðist fyr­ir um af hverju þeir nýttu ekki nú­tíma­tækni fékk hann þau svör að þetta væri gert svona til að skapa fólki at­vinnu. Gröf­ur og vinnu­vél­ar myndu fækka störf­um. Hann benti á að ef til­gang­ur­inn væri fyrst og fremst að skapa störf þá væri nær að nota mat­skeiðar við gröft­inn. Þannig væri hægt að skapa ógrynni starfa.“

Hún bendir á að það geti ekki verið markmið stjórnvalda að fjölga opinberum starfsmönnum, ekki frekar en að rétta vegavinnumönnum matskeiðar. Fullyrðir hún að engin lausn felist í tillögu þingmannsins, heldur sé hún einungis plástur á blæðandi sár.

Ljóst er að varaforseti Ungra jafnaðarmanna er ekki á eitt sáttur með pistilinn frá dómsmálaráðherra.

„Þessi saga kom upp í hugann á dómsmálaráðherra þegar Samfylkingin lagði til að fjölga hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, kennurum, skólaliðum, barnaverndarfólki, sálfræðingum, vísindafólki og lögreglumönnum. Þetta fólk gæti alveg eins verið að grafa skurði með matskeiðum, eða hvað?“ spyr Óskar.

„Sorglega opinberandi um viðhorf dómsmálaráðherra til opinberra starfa.“

Fleiri fréttir