Söngkonan Helga Möller segir að hún hafi séð sjálfan Jesú Krist í gosinu.
„Ég var í þyrlu með opna hurð og horfði niður á Jesú Krist, að mér fannst,“ segir Helga Möller í samtali við Fréttablaðið. Hún deildi mynd af gosstöðvunum í Geldingardölum á samfélagsmiðli sínum í dag og hefur myndin, vægast sagt, vakið gríðarlega athygli.
„Það sem mér fannst mögnuð mynd og það sem er ótrúlegast er að morguninn eftir las ég í blöðunum að þessi helgimynd hefði hrunið ofan í,“ segir stórsöngkonan við Fréttablaðið.
Hún segir að það sem sjáist á myndinni minni á líkneski Jesú í Rio de Janeiro í Brasilíu.
Viðtalið er hægt að lesa hér í heild sinni.