Sól­veig Anna tók kosninga­próf: „Ég er mest sam­mála...“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar deildi á Face­book síðu sinni í kvöld að hún tók kosninga­próf RÚV.

Sam­kvæmt vef RÚV virkar kosninga­prófið þannig að þú berð saman af­stöðu þína til nokkurra full­yrðinga við af­stöðu fram­bjóð­enda. Svo færðu að vita hvaða frambjóðanda þú ert líkastur.

Niður­stöðurnar komu kannski ekki á ó­vart, en Sól­veig var mest lík fram­bjóðanda Sósíal­ista­flokksins, henni Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttir.

„Tók kosninga­prófið á Rúv. Ég er mest sam­mála Sönnu. Á­fram Sanna!,“ segir Sól­veig í færslunni.

Þá deildi hún líka minningu á Face­book þar sem tvö ár eru liðin síðan það náðust kjara­samningar við SÍS.

„Fórum tvisvar í verk­fall, börðumst við í­haldið í Sam­bandi ís­lenskra sveitar­fé­laga, sam­einaða leiðara­höfunda aftur­haldsins, hinar og þessar leiðinda­skjóður (eins og eitt stykki heims­far­aldur...) og við gáfumst aldrei upp. Fórum alla leið og unnum sigur. Mögnuð stund, frá­bær minning.“

Fleiri fréttir