Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir Alþýðusamband Íslands harðlega fyrir að „hafa með bakdyraleiðum“ reynt að ýta innleiðingu svokallaðs norræns vinnumarkaðsmódels hér á landi.
Gagnrýni sína setur Sólveig Anna fram í færslu á Facebook nú í kvöld. Fréttablaðið greindi frá.
„Íslenska auðstéttin og ríkisvaldið hafa barist af miklum móð síðustu áratugi fyrir innleiðingu svokallaðs norræns „vinnumarkaðsmódels“. Í því verkefni hafa þau notið stuðnings heildarsamtaka launafólks, meðal annars Alþýðusambands Íslands,“ skrifar formaður Eflingar.
„Í gær fengum við að sjá þetta norræna vinnumarkaðsmódel í allri sinni dýrð, en þá bannaði norska ríkisstjórnin einfaldlega verkfallsaðgerðir verkafólks í olíubransanum. Krafa þeirra var sú að laun þeirra héldu í við verðbólgu,“ heldur Sólveig Anna.
Sérstaklega áhugavert segir Sólveig Anna vera að í forsvari fyrir þessari ákvörðun sé Marte Persen, ráðherra vinnumarkaðar og „inkludering“, sem komi úr sjálfum norska Verkamannaflokknum.
„Ef ekki hefði verið fyrir andstöðu Eflingarfélaga vorið 2021 hefði Alþýðusamband Íslands látið stíga stórt skref í átt að innleiðingu þessa módels, í líki svokallaðrar „Grænbókar“. Í þessu svokallaða vinnumarkaðsmódeli geta ríkisstjórnir með einu pennastriki afnumið samningsrétt verkafólks gagnvart sínum atvinnurekendum um kjör,“ útskýrir formaðurinn.
„Þetta „módel“ er ekkert annað en ógeðslegt ofbeldi og gerræði gegn mikilvægasta rétti vinnandi fólks. Það er óskiljanleg skömm að Alþýðusamband Íslands hafi reynt með bakdyraleiðum að ýta innleiðingu þess áfram. En það er þó staðreynd sem engin getur neitað,“ segir að endingu í Facebook færslu formanns Eflingar.
Hægt er að lesa greinina á Fréttablaðinu.