Frumkvöðullinn Haraldur Þorleifsson fullyrti á Twitter á dögunum að Eflingarfólk ætti fullan rétt á að fara í verkfall.
Hann sagði að láglaunafólk ætti ekki að bera ábyrgð á ferðamannaiðnaðinum, veitingabransanum eða öðrum þáttum hagkerfisins.
„Þau eru láglaunafólk í kjarabaráttu og eiga ekkert annað skilið en takmarkalausan stuðning.“ sagði hann.
Sólvegi Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur þakkað fyrir stuðninginn. Hún minnist á að Haraldur hafi að margra mati verið maður ársins.
„Takk fyrir stuðninginn, hann er ómetanlegur.“ segir hún.