Sól­veig Anna svarar fyrir sig: „Fram­­ferði vara­­for­­manns Eflingar fyrir neðan allar hellur“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir hefur svarað Agnieszka Ewa Zi­ól­kowska, vara­­for­manni Eflingar í færslu á Face­book þar sem hún segist ein­fald­lega vera fylgja lögum fé­lagsins.

„Fram­­ferði vara­­for­­manns Eflingar í gær og í dag vegna boðunar á fé­lags­fundi hjá Eflingu er fyrir neðan allar hellur,“ segir Sól­veig og heldur því fram að Agni­eszka hafi reynt að fá starfs­mann fé­lagsins sem hefur enginn fé­lags­­leg völd til þess að boða fé­lags­fund, „ein­fald­­lega af því að hún skipaði honum að gera það.“

„Með þessu gerði vara­­for­­maður til­­raun til að þvinga fram ó­­lög­­legt fundar­­boð en sam­­kvæmt lögum fé­lagsins er það stjórnar að boða fé­lags­fund,“ segir Sól­veig og heldur á­­fram, “Að vara­­for­­maður hafi svo yfir­­­borðs­­kennda þekkingu á lögum fé­lagsins að hún skilji ekki og/eða þekki ekki hvar á­byrgð á boðun funda liggur er til skammar.“

Sól­veig segist taka stöðu sinni sem for­­maður al­var­­lega og að hún muni ekki taka þátt í því að brjóta lög fé­lagsins.

„Stjórn kemur saman og á­­kveður dag­­setningu fé­lags­fundar sem svo er aug­­lýstur með réttum hætti sam­­kvæmt lögum fé­lagsins.“

Færsluna má sjá hér fyrir neðan.

Fleiri fréttir