Sól­veig Anna skýtur fast á Pírata: „Heppnar að eiga svona flotta karl-pírata-femín­ista“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hæðist að Pírötum og ætlunum þeirra að af­nema bann við fram­leiðslu kláms á Ís­landi í nýrri færslu á Face­book-síðu sinni. Sól­veig Anna segir að Píratar ætli að af­nema það vegna þess að bannið sé „feðra­veldið“ og að Píratar séu femín­istar.

„Þeir telja á­hrif banns við fram­leiðslu á klámi á Ís­landi hafa búið til meira "feðra­veldi" í lífi kvenna. Með því að af­nema bann við fram­leiðslu á klámi ætla Píratar að frelsa konur. Þeir ætla líka, á meðan þeir frelsa konur með því að af­nema bann við fram­leiðslu á klámi, að hjálpa börnum að skilja góð sam­skipti og hvernig á ekki að vera "feðra­veldi",“ segir Sól­veig Anna.

Hún segir að Píratar viti að bann við fram­leiðslu á klámi sé ekkert annað en „púrítan­ismi“ og að konur sem eru á móti klámi séu „bara ótta­legar teprur.“

„Svona gamal­dags, kannski svona mussu-konur? Það þarf bara að frelsa þær og kenna þeim að vera ekki feðra­veldi í mussu,“ segir Sól­veig Anna.

Hún segir að Píratar telji klám hluta af kyn­hegðun en ekki nauðgunar­menningu.

„…ekki iðnað sem snýst um að niður­lægja konur, brútal arð­ráns-iðnað sem nærist á enda­lausu og sí­fellt grófara of­beldi gagn­vart konum. Nei, bara kyn­hegðun. Þeir eru samt alltaf að rök­ræða klám sem femín­istar en það er bara engin niður­staða komin. Önnur en að kyn­hegðun er svo fjöl­breytt og við erum svo ólík öll,“ segir Sól­veig Anna og heldur svo á­fram:

„Og af því erum svo fjöl­breytt í kyn­hegðun okkar þá er það svo að 88,2% af senum í basic klámi inni­halda flengingar, „gagging“ og kinn­hesta. Þeir sem beita þessari kyn­hegðunar­nálgun eru karlar og þær sem taka við henni voru konur. Svona bara er þetta; " Við erum gríðar­lega ólík þegar kemur að kyn­lífi. Það er allur gangur á því hvað okkur finnst á­nægju­legt."“

Að lokum segir hún að konur séu heppnar að eiga „svona flotta karl-pírata-femín­ista sem vita hvar og hve­nær upp­ræta þarf feðra­veldi.“

Færsluna er hægt að sjá að neðan.

Nú ætla Píratar að afnema bann við framleiðslu kláms á Íslandi. Það er vegna þess að bannið er "feðraveldi" og þeir eru...

Posted by Sólveig Anna Jónsdóttir on Wednesday, 12 May 2021

Fleiri fréttir