Sól­veig Anna segir her­ferð gegn sér byggða á „of­s­tæki og and­úð“

Mikill styr hefur staðið um Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur, frá­farandi for­mann verka­lýðs­fé­lagsins Eflingar, eftir að hún til­kynnti á sunnu­dags­kvöld að hún léti af störfum. Hún hefur ekki svarað í­trekuðum fyrir­spurnum fjöl­miðla vegna málsins en tjáir sig um það í færslu á Face­book.

Sjá frétt: Beiðni um vinnu­frið hafnað af­­dráttar­­laust af starfs­­fólki

Hún segir þar að hún hafi aldrei fengið vinnu­frið á skrif­­stofu Eflingar til að sinna þeim verk­efnum sem hún var kjörin til að sinna.

„Verk­efni mitt var ein­fald­­lega ekki tekið al­var­­lega,“ segir Sól­veig Anna. Hún nefnir sem dæmi um erfiðar starfs­að­stæður að því hafi verið illa tekið að hún borðaði há­degis­mat sinni inni á skrif­stofu.

„Þegar ég frétti af því að þetta væri illa séð og tekið sem enn ein sönnun á því hve ömur­­leg ég væri brást ég strax við og reyndi að fremja þennan glæp aldrei aftur. Þetta er að­eins eitt dæmi um það skilnings­­leysi og virðingar­­leysi sem ég mætti,“ segir hún.

Hún segir að hún hafi í fullri ein­lægni beðið starfs­­fólk um að veita sér vinnu­frið en þeirri beiðni verið hafnað. „Þeirri beiðni var af­­dráttar­­laust hafnað; her­­ferðin inná vinnu­­staðnum, byggð á of­s­tæki og and­úð í minn garð, skyldi halda á­­fram, með engan endi í sjón­­máli. Því fór sem fór,“ segir Sól­veig Anna.

Fleiri fréttir