Sól­veig Anna segir Diljá ekkert annað en „ó­merki­legan pólitískan loddara“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og fram­bjóðandi Sósíal­ista­flokksins, er harð­orð í garð Diljár Mistar Einars­dóttur, fram­bjóðanda Sjálf­stæðis­flokksins, og segir að henni standi „ná­kvæm­lega sama um þær raun­veru­legu verka og lág­launa­konur sem eiga ekki krónu með gati.“

Diljá var gestur í Silfrinu á RÚV í dag og Sól­veig Anna virðist ekki mjög hrifin af því sem hún sagði þar en til um­ræðu var stór­skattur á þau sem eiga hundruð milljónir í hreina eign og hvernig fram­kvæmdin var síðast þegar það var reynt. Diljá Mist hafði orð á því hvernig það gæti hentað illa þegar fólk ætti hreina eign en gæti ekki staðið skil á sköttum og öðrum tengdum gjöldum, og þá sér­stak­lega ekkjur.

„Henni stendur ná­kvæm­lega á sama um þá stað­reynd að fjöldi verka­kvenna hefur ekki efni á nauð­syn­legri heil­brigðis­þjónustu. Henni stendur ná­kvæm­lega á sama um að stór hópur verka­kvenna sé fastur á leigu­markaði og þurfi að horfa á eftir ráð­stöfunar­tekjum sínum í vasa þeirra sem til­heyra eigna­stéttinni. Henni er ná­kvæm­lega sama um þær konur sem urðu undir í Co­vid-kreppunni og þurftu að leita á náðir hjálpar­sam­taka til að fá mat fyrir sig og af­kvæmi sín á meðan þær sukku enn dýpra í fá­tæktar-fenið,“ segir Sól­veig Anna.

Hún segir að henni sé sama um verka­konur og að henni þyki betra að „delera og bulla um ein­hverjar ekkjur sem, ef þær á annað borð eru til, til­heyra ríkasta og dekraðasta hluta þeirra sem byggja þetta land, og af­vega­leiða með því lýð­ræðis­lega, pólitíska um­ræðu.“

„Diljá Mist er ekkert annað en ó­merki­legur pólitískur loddari. Ég vona af öllu hjarta að hún og þessi ömur­legi arð­ráns og spillingar­klúbbur sem hún til­heyrir, Sjálf­stæðis­flokkurinn, missi þau eitruðu völd sem þau hafa í sam­fé­laginu okkar,“ segir Sól­veig Anna.

Fleiri fréttir