Sólveig Anna ósátt: „Þetta er svo gjörsamlega fáránlegt að ég get ekki annað en hlegið“

Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar segir að hóp­upp­sögnin sem fór fram í Eflingu á síðasta ári sé lög­mæt og að hún muni standa. Í dag birti Fé­lags­dómur á­kvörðun sína, þar sem kom meðal annars fram að upp­sögn fé­lagsins á trúnaðar­manninum Gabríel Benja­min hafi verið ó­lög­mæt.

Í stöðu­upp­færslu á Face­book ber Sól­veig Gabríel söguna ekki vel.

„Þessi fá­rán­legi ein­stak­lingur sendi mönnum útí bæ per­sónu­leg skila­boð um að ég væri að ljúga þegar ég sagði frá al­var­legri og grófri of­beldis­hótun sem ég varð fyrir frá sam­starfs­manni hans. Allt sem ég sagði var „pjúra lygi“ sam­kvæmt honum. Hann skrifaði snar­bilaða níð­grein um mig síðasta vetur, upp­fulla af grófum per­sónu­á­rásum og lygum,“ segir Sól­veig Anna.

Sól­veig segir að Gabríel hafi í­trekað sagt ó­satt í fjöl­miðlum um starf­semi skrif­stofu Eflingar til að skapa hræðslu hjá fé­lags­fólki.

„Meðal annars laug hann því að við gætum ekki greitt út sjúkra­dag­peninga til fólks, gætum ekki tryggt ein mikil­vægustu réttindi fé­lags­fólks. Hann sótti svo ekki einu sinni um starf aftur hjá fé­laginu, eins og allt starfs­fólk var hvatt til að gera. Hvers­vegna? Jú, af því að hann trúði því að ég ætti að hringja í hann og bjóða honum starfið (eða bjóða honum á fund til að horfa í augun á honum) sökum stór­kost­legrar sér­stöðu hans í mann­legri til­veru!,“ segir Sól­veig.

Hún segir að Fé­lags­dómur hafi tekið undir „trylltar“ rang­hug­myndir Gabríels, að hann einn hafi ætlað frelsa fé­lags­menn Eflingar undan yfir­ráðum Sól­veigar.

„Og hann kallar mig ein­ræðis­herra fyrir að hafa ekki talið rétt að krýna hann sér­stakann skrif­stofu­prins Eflingar. Þetta er svo gjör­sam­lega fá­rán­legt að ég get ekki annað en hlegið,“ segir Sól­veig.

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir