Sólveig Anna hjólar í „gáfuðu mennina“

Ýmsir gáfaðir menn með mörg háskólapróf hafa stigið fram í viðtölum á síðustu dögum, til að tjá sig um átökin í Alþýðusambandinu. Þar eru þeir eru beðnir um að útskýra og greina atburðina fyrir okkur vesalingunum,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar í færslu á Facebook síðu sinni í dag. „Þessir gáfuðu menn eru oftast sammála hinnu bitru valdaklíku ASÍ: enginn málefnalegur ágreiningur, deilur snúast bara um persónur og völd.“

Í færslunni gagnrýnir Sólveig Anna málflutning í umræðunni um ágreininginn innan ASÍ. Hún segir að eðlilegt væri að skilja „undarlega vitsmunafátækt hinna gáfuðu manna“ ef það hugmyndafræðilegur ágreiningur innan sambandsins hefði farið hljótt, en svo sé ekki.

„Ég hef margoft tjáð mig um þennan ágreining um markmið og leiðir, í greinum í blöðunum og í Facebook-statusum. Allt er þetta efni aðgengilegt fræðimönnum, heimildir sem að þeir geta plokkað sem ávexti af trjánum og unnið úr með sínum fræðilegu vinnubrögðum.“

Sólveig bendir á að í sumar hafi hún skrifað greinaflokk í fjórum pörtum þar sem hún reki rætur og birtingarmyndir þess hvernig hún telur að ASÍ hafi misheppnast að laga sig að nýjum straumum í verkalýðsfélögum landsins. Hún segir að enginn hafi vísað í skrifum hennar um viðfangsefnið.

„En hvað veit ég, kannski er þetta einmitt svona í hinum virðulegu menntastofnunum sem ég hef reyndar aldrei komið í enda ómenntuð láglaunakona.“

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir