Sólveig Anna, sem var á dögunum kjörinn formaður Eflingar, deildi á facebook síðu sinni að henni hafi loksins verið óskað til hamingju með sigurinn.
Hún hafði furðað sig á því að fráfarandi formaður félagsins, Agnieszka Ewa Ziółkowska, hafi ekki óskað henni til hamingju þegar hún tók aftur við formennsku á aðalfundi Eflingar um daginn.
Í færslunni segir hún „Takk elsku besta fólk. Við sjáumst í baráttunni,“ og viðist hún vera glöð með hamingjuóskirnar og blóminn sem hún fékk.
Í korti sem fylgdi með var skrifað „Stormar geta rifið froðuna af öldutoppum og tvístrað, en þeir knýja líka hinn þrotlausa hjartslátt hafsins sem bryður hamra í morgunmat.