Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ekki allar farir sínar sléttar af samskiptum við fyrrum fjármálastjóra Eflingar.
„Fyrrverandi fjármálastjóri Eflingar var ávallt mjög andsnúin því að liðsinna mér þegar ég tók við sem formaður. Að fá skýr svör, útskýringar, aðstoð var aldrei sjálfsagt mál og eiginlega alltaf frekar erfitt,“ segir Sólveig í færslu á Facebook síðu sinni.
Glæpsamlegir reikningar í umferð
Formaðurinn lýsir því að hafa viljað vanda til verka og forðast mistök með því að afla sé upplýsinga um starfsemi félagsins. Í kjölfarið hafi farið af stað „viðbjóðslega lygasaga“ um að hún hafi sent fyrrum fjármálastjórann í veikindaleyfi eftir eigin hentisemi.
„Af því að ég hefði reynt að fá einhverja glæpsamlega reikninga samþykkta, ég var mjög sjokkeruð og eiginlega alveg miður mín.“ Í rauninni hafi þveröfug framvinda farið fram.
„Ég fór til fjármálastjóra og spurði um allt, öll smáatriði, vegna þess að ég var einstaklega upptekin af því að gera allt 100% rétt. Það vissu hún og fyrrum skrifstofustjóri Eflingar sem þó fóru um með ógeðslegan rógburð um mig og starfshætti mína aftur og aftur.“
Skýring lítur dagsins ljós
Nú telur Sólveig skýringuna á þeirri hegðun vera komna upp á yfirborðið. Fyrrum forsvarsmenn Eflingar eru nú grunaðir um að hafa ekki staðið skil á opinberum gjöldum um árabil og eru fjárhæðir í vanskilum vel á þriðja tug milljóna króna. Bókhald var ekki haldið og talið að persónulegar greiðslur til forsvarsmanna félagsins standist ekki lög.
„Hér er kannski komin ein skýring á því hversu stórkostlega undarleg stemningin og samskiptin voru, hversu erfiðlega það gekk að fá útskýringar og hjálp hjá einum af mikilvægustu starfsmönnum félagsins,“ segir Sólveig.