Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti annars varaforseta ASÍ.
Hún greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Ég hef verið gagnrýnin á Alþýðusamband Íslands. Ég skrifaði nýlega greinaflokk þar sem ég sagði frá vondri reynslu minni af störfum á vettvangi sambandsins síðustu 4 ár; ömurlegri stéttasamvinnu-hugmyndafræði, Salek-kreddum og yfirtöku sérfræðingastéttarinnar á kostnað áhrifa félagsfólks og lýðræðislegra vinnubragða,“ segir Sólveig Anna meðal annars í færslu sinni.
Hún segir hægt að snúa þróuninni við. Með nýrri forystu, nýjum áherslum og nýjum vinnubrögðum sé mögulegt að umbreyta Alþýðusambandinu.
Með því að gefa kost á sér í embætti annars varaforseta ASÍ segist Sólveig vera bregðast við hvatningu Eflingarfélaga um að verka- og láglaunafólk, eigi sterka rödd innan verkalýðshreyfingarinnar.
„Þessari sýn deilum ég og Ragnar Þór, og ég hvet Eflingarfélaga sem og allt félagsfólk í Alþýðusambandinu til að koma með okkur í það verkefni. Það er því miður engin trygging fyrir því að það takist, enda eru andstæðingar okkar margir og einbeittir. En það er skylda okkar að taka slaginn,“ segir Sólveig Anna að lokum í færslu sinni.