Sól­ey skýtur föstum skotum að Guð­mundi: „Karl með upp­blásið egó“

Guð­mundur Frank­lín Jóns­son, hótel­stjóri og stofnandi Hægri grænna, til­kynnti í dag um fram­boð sitt til for­seta Ís­lands og er nokkuð ó­hætt að segja að það hafi hlotið blendin við­brögð á sam­fé­lags­miðlum í dag. Meðal þeirra sem tjá sig um fram­boðið er Sól­ey Tómas­dóttir, fyrr­verandi borgar­full­trúi.

Í ræðu sinni í morgun á Face­book sagðist Guð­mundur meðal annars ætla að berjast gegn spillingu. Hét hann því jafn­framt að setja orku­pakka þrjú og fjögur í þjóðar­at­kvæði.

„Karl með upp­blásið egó sem finnst sjálf­sagt að kosta sam­fé­lagið tugi milljóna og svo hann geti fengið sínar fimm mínútur af frægð er ekki að gera lýð­ræðinu neinn greiða,“ skrifar Sól­ey í Twitter færslu.

Hún er ekki sú eina til að lýsa yfir efa­semdum um fram­boð Guð­mundar líkt ogDV tók saman. Þannig segir Snæ­björn Brynjars­son, vara­þing­maður Pírata að það sé meiri eftir­spurn eftir kóróna­veirunni en fram­boðinu hans. Margir velta fyrir sér hvort Guð­mundur sé hinn nýi Ást­þór Magnús­son.

„Nýr 1% trúður? Ætli Ást­þór sé endan­lega hættur?“ spyr Björn Birgis­son á Face­book. „Á sama tíma og Guðni tók við af Ólafi Ragnari tók Guð­mundur Frank­lín við af Ást­þóri Magnús­syni,“ segir Kjartan Þor­björns­son á Twitter.

Árni Árna­son spyr hvort hann sé haldinn sjálfs­eyðingar­hvöt. „Hann hefur í­trekað reynt að komast á þing, borgar­stjórn, stjórn Lions klúbba, kven­fé­laga, sóknar­nefnda, nefnið þið bara. Hann fær greini­lega ein­hverja fróun úr því að upp­lifa höfnunar­til­finningu, ætli hann sé haldinn sjálfs­eyðingar­hvöt?“

Fleiri fréttir