Einar Hermannsson sagði af sér formennsku hjá SÁÁ í dag. Sagði hann í yfirlýsingu að „hann hafi svarað auglýsingu á netinu þar sem í boði var kynlíf gegn greiðslu“. „Sú hegðun er ófyrirgefanleg en ég taldi mér ranglega trú um að þau samskipti væru grafin og gleymd og þau hafa ekki haft áhrif á störf mín fyrir SÁÁ,“ sagði hann.
Stundin greindi svo frá því í kjölfarið að Einar hafi keypt vændi af konu á árunum 2016 til 2018, en hún er í dag skjólstæðingur SÁÁ. Málið er fyrnt.
Alexandra Briem, forseti borgarstjórnar, segir um málið á Twitter:
„Vá hvað þetta er gífurlega ömurlegt. Og vá hvað þetta er ömurleg tilkynning frá honum líka, einhvern vegin að reyna að lágmarka eigin ábyrgð og koma ábyrgðinni upp á skjólstæðinginn eins og hann getur,“ segir hún og bætir við:
„Ógeðslegt!“
Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, tætir í sig yfirlýsinguna hans:
„Svaraði auglýsingu er aumingjalegasta viðurkenning á glæp sem ég hef orðið vitni að. Minnir á þegar karlar lentu í að beita ofbeldi og voru tældir af þolendum sínum. Nennir einhver að skila til hans að við séum á 21. öldinni?“