Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og sérfræðingur í uppeldis-, kynja- og fjölbreytileikafræðum, er laus úr einangrun og segist upplifa mikið þakklæti. Sóley greindi frá því í júlí að fyrst hefði dóttir hennar smitast í fríi þeirra á landinu og svo hún sjálf í heimsókn hjá vinum á Siglufirði.
Sóley segist fegin að þær mæðgur hafi ekki smitað aðra og að aðrir fjölskyldumeðlimir hafi sloppið.
„Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa verið hjá Kiddu sem er umburðarlyndasta kona sem ég þekki, að eiga hana fyrir vinkonu og að hún segist ekki ætla að henda símanúmerinu mínu þó einnar nætur heimsókn hafi breyst í 19 daga dvöl,“ segir Sóley, eflaust í gríni, og segist einnig þakklát fyrir aðra fjölskyldumeðlimi sem hafi aðstoðað þær mæðgur í gegnum einangrunina.
„Ferðin til Reykjavíkur var stórkostleg og ég held svei mér þá að gosið hafi skellt í flugeldasýningu til að fagna upprisu minni. Takk öll sömul fyrir góðar kveðjur. Einn góðan veðurdag verður þetta sumarfrí fyndin saga. Farið samt varlega,“ segir Sóley að lokum.