Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, kemur Degi B. Eggertssyni til varnar vegna ásakana af hálfu Vigdísar Hauksdóttur á hendur honum um hroka og yfirgengilega frekju. Hún segir það beinlínis fyndið að ímynda sér þá útgáfu af Degi sem Vigdís lýsir.
Vigdís sagði í gær að Dagur hafi margsinnis sýnt af sér hroka og yfirgengilega frekju.
„Honum mislíkar oft skoðanir og bókanir okkar í meirihlutanum. Hann hefur oft tekið reiðiköst á fundum og frussar á okkur skammaryrðum. Embættismenn sitja hnípnir hjá. Þetta er oft á tíðum ógnandi tilburðir sem líkja má við kúgun og þöggun. Hann telur að hann hafi boðvald yfir okkur, en það er siðlaust og óheiðarlegt því við sækjum okkar umboð til kjósenda en ekki hans eða ráðhússins,“ segir Vigdís.
Lýsingin fyndin en ásakanirnar ekki
Sóley gefur eins og áður segir lítið fyrir lýsingar Vigdísar af háttalagi borgarstjórans. Hún hafi unnið með honum í mörg ár, bæði sem pólitískum samherja en líka andstæðingi.
„Þó ég gæti alveg rakið allskonar galla hjá honum eins og öðru fólki, þá er það beinlínis fyndið að reyna að ímynda sér hann í reiðikasti, hvað þá ofsareiðikasti, frussandi skammaryrðum þannig að embættisfólk sitji hnípið hjá,“ skrifar Sóley.
„En það er ekki fyndið að Vigdís ljúgi þessu upp á hann, því hennar aðferðafræði gengur út á einmitt þetta. Að sverta fólk og ljúga upp á það til að afla sjálfri sér vinsælda. Það er lágkúruleg og ljót pólítík sem ég vona að kjósendur sjái í gegnum.“