Femínistinn og kynjafræðingurinn Sóley Tómasdóttir greindi frá því á Twitter í dag að hún hafi farið að gráta í útvarpsviðtali í dag. Þessu greindi hún frá á Twitter.
Baráttukonan Ólöf Tara deildi með fylgjendum sínum á Twitter að hún hafi farið að gráta um daginn því baráttan væri stundum svo erfið.
„Fór að gráta í seinustu viku því baráttan er oft erfið. Það var mjög gott og mér leið betur eftirá. Þetta er reminder að það er gott að geta grátið,“ sagði Ólöf, og svaraði Sóley henni:
„Ég fór að gráta í útvarpsviðtali í morgun. Grátur þarf að fá meira pláss í opinberu rými,“ sagði Sóley.
Hún vildi ekki greina frá því í hvaða viðtali hún væri í eða á hvaða útvarpsstöð.
Ég fór að gráta í útvarpsviðtali í morgun. Grátur þarf að fá meira pláss í opinberu rými.
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) February 8, 2023