Maður er bara alveg niðurbrotinn“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson sem betur er þekktur sem Siggi Stormur en sonur hans Árni þurfti að leggjast aftur inn á spítala eftir bakslag en hann var útskrifaður af spítala þann 30. september.
„Pabbi varð 92 ára þann 10. október og ætlaði að bjóða honum til sín en honum er svo bara kippt til baka þrátt fyrir farið hefði verið í gegnum allan kviðinn á drengnum,“ segir Sigurður en ekkert hafi orðið af þessu þar sem Árni hafi veikst að nýju.
Sigurður segir að Einar Stefán Björnsson meltingalæknir hafi tekið á móti Árna þegar hann byrjaði að fá hita í bakslaginu en fjölskyldan hafi verið vöruð við því að leita sér aðstoðar ef slíkt myndi gerast.
„Það er sett í gang ákveðið teymi í kringum þetta allt saman og þetta er sett einnig í hendur skurðlækna og það leiðir til þess að þrátt fyrir allar þær myndatökur sem hafa farið fram að það finnast í honum fimm gallsteina,“ segir Sigurður.
Þar sem læknar hafi ekki fundið steinana í fyrstu vissu þeir ekki hvað amaði að Árna og það leiddi til þess að þeir töldu hann vera að gera sér upp verkina til þess að komast í verkjalyf.
„Þeir sem hafa fengið gallsteina þeir vita að þetta er mjög sársaukafullt ferli. En það er alltaf verið að gera honum upp að hann sé að gera sér upp verki til þess að geta fengið verkjalyf,“ segir Sigurður sem segir að erfitt hafi verið fyrir Árna að sannfæra lækna um það að honum væri raunverulega illt.
„Þegar þú ert búinn að vera í 10 mánuði að berjast fyrir lífi þínu þá ert þú niðurbrotinn. Það er búið að brjóta þennan dreng niður,“ segir Sigurður en Árni hefur eins og áður hefur verið um fjallað átt við mikil veikindi að stríða síðan á síðasta ári.
„Þetta er eitt ömurlegasta kerfi sem ég hef þurft að ganga í gegnum en innan um eru þarna mjög elskulegir og færir læknar og hjúkrunarfræðingar sem er að gera sitt besta við mjög erfiðar aðstæður,“ segir Sigurður.
Hægt er að lesa greinina hér.