Netverjar vekja athygli á þriðju vaktinni og deila sögum af andlegri vinnu kvenna í þjóðfélaginu.
„Er ég versti pabbi á Íslandi eða hringja allar stofnanir alltaf bara fyrst í mömmur barnanna? Sama hvað ég hef reynt að láta hringja í mig þá er alltaf hringt fyrst í konuna mína,“ spyr einn pabbi í tísti sem hefur vakið mikla athygli.
Áhugaverðar umræður hafa skapast í kjölfarið um tilfinningavinnu kvenna og mismunandi væntingar sem gerðar eru til einstaklingar, og þá sérstaklega foreldra, eftir kyni.
Er ég versti pabbi á Íslandi eða hringja allar stofnanir alltaf bara fyrst í mömmur barnanna? Sama hvað ég hef reynt að láta hringja í mig þá er alltaf hringt fyrst í konuna mína 🥸 pic.twitter.com/emf7Iz2ekm
— Maggi Peran (@maggiperan) January 23, 2021
Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, sagði í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins að hjá Hjallastefnunni hafi verið tekin ákvörðun um að hringja allaf fyrst í pabbann ef eitthvað kæmi upp.
„Þetta þótti mjög framúrstefnulegt. En þetta gerist ekki af sjálfu sér. Stundum þarf sértækar aðgerðir sem geta verið sársaukafullar, til að breyta. En það var líka sársaukafullt að þurfa að hætta að reykja á bar, byrja að nota öryggisbelti og hætta að hafa börnin laus í skottinu. Við þurfum ekkert endilega að kalla þetta forræðishyggju, við getum líka kallað það umhyggju, eða bara nútímann.“
Öll þessi umræða um the mental load hefur bara gert mig meðvitaðri um að ég er búin að vera þreytt í heilt ár samfleytt
— sbj🎃rk (@VanHoppum) January 24, 2021
Kristlín Dís, blaðamaður á Fréttablaðinu og fyrrverandi pistlahöfundur hjá Stundinni, lýsti andlegri vinnu vel í grein sem hún birti árið 2019.
„Þriðja vaktin á heimilinu snýst um að reka heimili eins og það sé fyrirtæki eða vél, að sjá til þess að allt gangi smurt fyrir sig. Á vinnumarkaði vinna konur auka andlega vinnu sem felst í því að gera sér upp tilfinningar, að brosa, spjalla og þurfa almennt að setja sjálfa sig á bak við grímu,“ skrifaði Kristlín.