Snorri Ás­munds í­hugar for­manns­fram­boð: „Ég sagði þeim þá að það væri kominn tími á konu, en þá sögðu þeir tveir nánast í kór : En Snorri þú ert svo vel tengdur konunni í þér“

Mynd­lista­maðurinn Snorri Ás­munds­son hefur gefið út að hann sé að í­huga að bjóða sig fram til formanns Sjálf­stæðis­flokksins. Í færslu á Face­book segir Snorri að mjög margir stuðnings­menn hans hafi að undan­förnu skorað á hann að bjóða sig fram.

„En á­köfustu stuðnings­menn mínir í Sjálf­stæðis­flokknum hafa sagt mér að flokkurinn og þjóðin öll þurfi á mér að halda núna og að ég geti ekki hundsað það. Ég sagði þeim þá að það væri kominn tími á konu og að ég sæi Þór­dísi Kol­brúnu fyrir mér sem for­mann, en þá sögðu þeir tveir nánast í kór : En Snorri þú ert svo vel tengdur konunni í þér. Ég sagði þeim að ég skildi liggja undir feld fram á þriðju­dag og léti þá vita af á­kvörðuninni,“ skrifar Snorri.

Fleiri fréttir