Elínrós Hrund Þórðardóttir tók viðtöl við fjóra karlmenn sem hafa verið slaufaðir úr íslensku samfélagi eftir að hafa verið sakaðir um kynferðisofbeldi á opinberum vettvangi. Viðtölin voru tekin fyrir lokaverkefni hennar við Háskóla Íslands. Á vef Vísis er rætt við Elínrósu um verkefnið og birtar stuttar athugasemdir við karlmennina.
Þeir segja það erfiðasta við reynsluna hafa verið það að geta ekki svarað fyrir sig eða hafa nokkra leið úr aðstæðunum. Allir viðmælendur hennar áttu það sameiginlegt að slaufunin kom þeim á óvart og upplifuðu lítinn sem engan aðdraganda að henni. Allir misstu þeir vinnuna í kjölfar ásakananna gegn þeim.
Þeir lýsa þvi hvernig þeir hafi þurft að ræða málið við börn sín og fjölskyldur og hvernig þeir hafi upplifað þetta sem árás á alla fjölskylduna.
Nánar er fjallað um rannsóknina á vef Vísis.