Guðni Þorbjörnsson, starfsmaður verslunarinnar ARTPRO á Bíldshöfða birti á föstudaginn langa Facebook færslu þar sem hann lýsti því hvernig samfélagsmiðlastjarnan Viðar, „Enski“ Skjóldal hefði ítrekað ónáðað starfsmenn verslunarinnar.
Segir hann í færslunni að Viðari, sem er með mörgþúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Snapchat, hefði verið vísað vingjarnlega út alls fjórtán sinnum á einni klukkustund.
Bíll Viðars hafi auk þess verið lagt beint fyrir utan verslunina og mengun bílsins farin að teygja sig inn í hana.
Guðni segir Viðar fyrst hafa verið elskulegan og þakklátan. Hann hafi þó auðsjáanlega verið ölvaður og fljótt farið að ausa fúkyrðum yfir starfsmenn verslunarinnar.
„Við vorum að hans sögn ekkert annað en fífl og fávitar að vilja ekki vera stuðnigsaðilar hans með því að styðja hann í sínum stjörnuheimi samfélagsmiðla. Að lokum brást hann mjög illa við okkar tilmælum sem varð til þess að við urðum að “skola honum burt“ með slöngu og háþrýstivatni eftir að hafa móttekið allar heimsins hótanir frá honum um að hann væri svona og þetta mikil samfélagsmiðla“stjarna“ með 30 þúsund fylgjendur o.s.frv. bla bla,“ skrifar Guðni.
„Ekki vill ég þessu greyji nokkuð illt, en þetta var leiðinlega skrautleg uppákoma - sem endaði svo með því að því mér sýndist að löggimann hirti þau hjúin pissfull á mauk-klesta bílnum. Ég ætla bara rétt að vona að stuðningsaðilar greysins séu stoltir bakhjarlar.
Meðfylgjandi eru smá samhengislaus brot af upptökum úr eftirlitsmyndavélakerfi okkar í dag. Ég birti þetta einungis þar sem ég vill vera viss um að okkar hlið málsins komi skírt fram.“