Skemmta landsmönnum í sóttkví og samkomubanni

Í kvöld fer í loftið fyrsti þáttur af fjórum þar sem listafólk úr öllum áttum kemur saman til að skemmta fólki í samkomubanni, sóttkví og einangrun.

Hljómsveitin Vísur og skvísur, sem samanstendur af þeim Vigdísi Hafliðadótur og Þorgerði Ásu Aðalsteinsdóttur, ætla að mála dægrin ljós með vísnasöng en dúettið hefur einmitt það að markmiði að kynna landa sína fyrir vísnasöng.

Einnig mun Ævar Þór Benediktsson, betur þekktur sem Ævar Vísindamaður, lesa kafla úr bókinni Þín eigin þjóðsaga. Hann mælir með að ef börnin heima eiga bókina til í hillunni, að ná í hana og lesa með.

Þriðji á svið verður uppistandarinn, leikarinn og hlaðvarpsþáttastjórnandinn Vilhelm Neto. Hann ætlar sannarleg að kitla hláturtaugarnar og er því um að gera að fylgjast með og leyfa sér að gleyma amstri dagsins.

Skemmtikrafturinn Margrét Maack ætlar svo að lokum að kenna landsmönnum nokkur lauflétt spor og er því um að gera að færa til húsgögnin og dansa með fjölskyldunni.

Þátturinn, sem heitir Saman í sóttkví verður sýndur á Hringbraut klukkan 20:00 í kvöld og verður einnig sýndur í beinni á viðburðarsíðunni hér á Facebook.

Þættirnir verða sýndir á mánudögum en í næstu þáttum koma fram uppistandarnir Stefán Ingvar Vigfússon, Jono Duffy og Kimi Tayler, tónlistarmaðurinn Svavar Knútur, tónlistarkonurnar Ásta og K.óla, rithöfundurinn Þorvaldur S. Helgason, hljómsveitin Tendra og Kristrún Lárusdóttir Hunter sem ætlar að kenna öndunaræfingar fyrir fólk sem er kvíðið á tímum kórónaveirunnar.

Fleiri fréttir