Skattframtalsgerð 2015

Mögulegur frádráttur frá tekjum einstaklinga.


Skilafrestur skattframtals einstaklinga er til 20. mars næstkomandi en framlengdur skilafrestur getur lengst verið til 31. mars. Unnt er að sækja um frest á skattur.is á sama stað og farið er inn í skattframtalið sjálft. Fyrir flesta er auðvelt að samþykkja og senda framtalið þar sem flestar upplýsingar sem fram þurfa að koma í skattframtalinu eru forskráðar. Því þarf í flestum tilvikum aðeins örfáa smelli á vefsíðu skattsins til að klára dæmið.


En þó er ýmislegt sem hafa ber í huga, til að mynda heimildir til draga útlagðan kostnað frá tekjum sem er í fæstum tilvikum forskráður í framtalinu. Í flestum tilvikum er heimilt að færa kostnað á móti ökutækjastyrk, dagpeningum og rannsóknarstyrkjum. Einnig getur verið heimilt að sækja um lækkun á tekjuskattsstofni vegna veikinda á liðnu ári.


Hér á eftir er gerð grein fyrir þeim atriðum sem gott er að hafa í huga við skattframtalsgerðina.


Skattframtal einstaklinga 2015 - frádráttur frá tekjum


Ökutækjastyrkur


* Nýjar reglur um mat á kostnaði á móti ökutækjastyrk tóku gildi í ársbyrjun 2014. Helsta breytingin er að ekki er lengur þörf á að halda saman öllum rekstrarkostnaði bifreiða.


* Frá ökutækjastyrk heimilast til frádráttar tiltekinn stiglækkandi kostnaður á hvern ekinn km. í þágu launagreiðanda. Fylla þarf út ökutækjaskýrslu og frádrátturinn reiknast sjálfkrafa þegar upplýsingar um ekna km. hafa verið setta inn.


* Skilyrði fyrir frádrættinum eru að fyrir liggi skriflegur afnotasamningur á milli launþega og launagreiðanda þar sem aksturserindum er skilmerkilega lýst og að færð hafi verið akstursdagbók.


Dagpeningar


* Á móti fengnum dagpeningum er heimilt að færa til frádráttar ferða- og dvalarkostnað sem launþegi hefur sannanlega greitt vegna ferða á vegum launagreiðanda.


* Ef dagpeningar voru undir 1.000.000 kr. á árinu 2014 þarf ekki að fylla út eyðublað um dagpeninga og frádrátturinn færist sjálfkrafa á framtalið.


Iðgjöld í lífeyrissjóð


* Hámarksfrádráttur er 8%, 4% vegna skylduiðgjalda í lífeyrissjóð og 2 – 4% vegna iðgjalda í séreignasjóð. Frádrátturinn hækkaði úr 6% í 8% frá og með 1. júlí 2014. Frádrátturinn er yfirleitt forskráður á framtalið af innsendum launamiða, líkt og launin.


Frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum


* Heimilt er að draga frá kostnað á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum.


* Þó er ekki heimilt að draga frá kostnað á móti námsstyrkjum vegna náms sem veitir rétt til að stunda tiltekinn atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Skattyfirvöld hafa synjað gjaldfærslu kostnaðar við meistaranám á þeirri forsendu. Kostnaður vegna náms í hinu almenna skólakerfi telst almennt vera einkakostnaður og því ekki frádráttarbær.


* Ekki er heimilt að draga frá námsstyrkjum kostnað vegna tómstundanáms.


Frádráttur frá öðrum styrkjum og starfstengdum greiðslum


* Kostnaður vegna líkamsræktar að hámarki fjárhæð styrksins eða mest 50.000 kr. (hækkar í 55.000 kr. á árinu 2015).


* Frádráttur á móti samgöngugreiðslum að hámarki 84.000 kr.


Lækkun vegna framfærslu ungmenna


* Hægt er að sækja um lækkun á tekjuskattsstofni hafi framteljandi á framfæri sínu ungmenni sem eru við nám eða hafa að öðrum ástæðum það lágar tekjur að þær duga ekki til framfærslu. Hér er fyrst og fremst átt við ungmenni á aldrinum 16 – 21 ára sem ekki stunda lánshæft nám.


* Mesta lækkun á tekjuskattsstofni framfæranda við álagningu 2015 er 348.000 kr. miðað við að ungmenni hafi engar tekjur haft. Frá þessari fjárhæð dregst 1/3 af tekjum ungmennis þannig að þegar tekjur þess eru orðnar 1.044.000 kr. fellur réttur til ívilnunar framfæranda niður.


Lækkun á tekjuskattsstofni við tilteknar aðstæður


Ef sótt er um lækkun vegna neðangreindra aðstæðna ber að fylla út eyðublað RSK 3.05 þar sem gera þarf grein fyrir ástæðum þess að sótt er um slíka lækkun. Í flestum tilvikum þarf einnig að senda gögn sem staðfesta grundvöll beiðninnar.


Veikindi, slys, ellihrörleiki eða mannslát


* Ef veikindi, slys, ellihrörleiki eða mannslát hafa í för með sér verulega skert gjaldþol. Fyrst og fremst kemur til álita að lækka skattstofna ef til hefur fallið óbættur kostnaður sem framteljandi hefur greitt sjálfur og er umfram það sem telst venjulegur kostnaður, t.d. vegna lyfja og læknishjálpar.


Veikindi/fötlun barns


* Ef maður hefur á framfæri sínu barn sem haldið er langvinnum sjúkdómi eða fötlun sem hefur í för með sér veruleg óbætt útgjöld umfram venjulegan framfærslukostnað sem greidd eru af framfærendum.


Framfærsla vandamanna


* Ef maður hefur foreldra eða aðra vandamenn á framfæri sínu, enda geti þeir ekki sjálfir staðið undir framfærslu sinni.


Eignatjón


* Hafi maður orðið fyrir verulegu eignatjóni sem hann hefur ekki fengið bætt. Með verulegu eignatjóni er hér átt við að fjárhagslegar afleiðingar tjóns sem verður á eignum manns skerði gjaldþol hans. Ívilnun kemur ekki til álita ef mögulegt er að fá tjónið bætt úr hendi annars aðila.


Tapaðar kröfur


* Hafi gjaldþol manns skerst verulega vegna tapa á kröfum sem ekki tengjast atvinnurekstri hans. Þetta gildir m.a. um ábyrgðir sem fallið hafa á framteljanda til greiðslu án möguleika til endurkröfu.


Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna viðhalds og endurbóta


Rétt er að hafa í huga um leið og gengið er frá skattframtalinu að heimilt er að sækja um endurgreiðslu á öllum virðisaukaskatti sem einstaklingar hafa greitt af vinnu við viðhald, endurbætur og hönnun á íbúðarhúsnæði og sumarhúsum. Sótt er um endurgreiðslu með því að fylla út eyðublað RSK 10.18 á vefsíðunni www.skattur.is og senda ríkisskattstjóra ásamt frumritum af þeim reikningum sem óskað er endurgreiðslu fyrir.


Frá ársbyrjun 2015 lækkaði endurgreiðsla virðisaukaskatts í 60% af viðhaldi og endurbótum á íbúðarhúsnæði og ekki er lengur heimilt að endurgreiða virðisaukaskatt vegna hönnunarvinnu og vegna viðhalds og endurbóta á sumarhúsum.