Skæruliðadeild Samherja reyndi að hafa áhrif á formannskjör í Blaðamannafélagi Íslands

Skæruliðadeild Samherja reyndi að hafa áhrif á niðurstöðu í formannskjöri í stéttarfélagi blaðamanna, Blaðamannafélag Íslands (BÍ). Frá þessu er greint í frétt á vef Kjarnans í dag. Þar segir að það hafi valdið hópi starfsmanna Samherja, sem kalla sig „skæruliðadeild Samherja“ nokkrum áhyggjum að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, starfsmaður RÚV, hafi ákveðið að bjóða sig fram á móti Heimi Má Péturssyni, sem starfar hjá Sýn.

Í skæruliðadeildinni eru meðal annars, samkvæmt grein Kjarnans, þau Arna Bryndís McClure, yfirlögfræðingur fyrirtækisins, Þorbjörn Þórðarson, sem starfar fyrir Samherja sem utanaðkomandi almannatengslaráðgjafi, Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, og Jón Óttar Ólafsson, ráðgjafi og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður sem starfað hefur fyrir Samherja árum saman.

Í frétt Kjarnans segir að rætt hafi verið meðal þessa starfsfólk að starfsfólk RÚV hefði skráð sig í Blaðamannafélag Íslands til að fá Sigríði Dögg kjörna og að þau þyrftu að taka símtöl til að koma í veg fyrir að starfsmenn einkarekinna fjölmiðla, Vísis, Morgunblaðsins og Fréttablaðsins, myndu kjósa hana líka.

Ljóst er að ætlun „skæruliðadeildarinnar“ tókst ekki því Sigríður Dögg var kjörin formaður félagsins með 54,6 prósent atkvæðum.

Talsvert hefur verið fjallað um þennan hóp starfsmanna á vef Stundarinnar og Kjarnans undanfarna daga en í gær voru birtar frásagnir af því hvernig tveir ein­staklingar sem störfuðu fyrir sjávar­út­vegs­fyrir­tækið Sam­herja skrifuðu og ritstýrðu greinum til varnar fyrir­tækinu sem birtar voru undir nafni Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra Sam­herja, á frétta­miðlum á borð við Vísi.

Í Fréttablaðinu í dag var greint frá því að ekki hafi ver­ið tek­in á­kvörð­un af hálf­u frétt­a­mann­a RÚV hvort kæra verð­ur lögð fram gegn „skær­u­lið­a­deild“ Sam­herj­a vegn­a að­gerð­a henn­ar sem fjall­að var um í Kjarn­an­um og Stund­inn­i í gær.

Fleiri fréttir