Gestur Sjóarans á Mannlífsþessa vikuna er Húsvíkingurinn Eiríkur Sigurðsson, skipstjóri á Reval Viking.
Eiríkur var Hágangi þegar norsk freigáta skaut á skipið þegar það var við veiðar á Svalbarðasvæðinu.
Í samtali við Sjóarann lýsir Eiríkur átökunum en skipið var skráð í Mið-Ameríkuríkinu Belís sem á hlut að Svalbarðasáttmálanum.
Norðmenn fara með stjórn á Svalbarðasvæðinu og vildu ekki sjá þessi erlendu skip þarna en Eiríkur og hans menn vildu ekki láta þá komast upp með að bola sér í burtu.
Norðmenn gripu í vopn úr þorskastríðinu og ætluðu sér að klippa úr þeim trollin.
,,Það tókst nú ekkert hjá þeim, þetta voru svo miklir klaufar, kunnu ekkert á þetta en svo til að stríða þeim þá slökuðum við bara hlerunum út en engu trolli, það voru bara grandarar á milli hleranna. Þeir fóru fyrir aftan okkur og voru að reyna að klippa því þeir héldu náttúrulega að við værum bara á togi en svo endaði með því að við nenntum þessu ekki og hífðum trollið upp. Það brutust alltaf út svakaleg fagnaðarlæti um borð í freigátunum því þeir sá náttúrulega að það komu engin troll! En trollin voru allan tímann uppi á dekki bara,“ segir Eiríkur í samtali við Sjóarann.
Þegar þeir voru við veiðar í Leirdýpinu skammt undan landhelgi Noregs kom ein freigátan siglandi og þeir ákváðu að hífa í hvelli. Þegar hlerarnir voru komnir upp var fullt af fiski í trollinu sem þá flaut fyrir aftan skipið. Freigátan sendi þá út léttbátinn með smærri gerð af klippum og ætluðu að reyna að klippa á pokann og rífa hann í tætlur.
Þegar léttbatinn var að bera að garði leist Eiríki ekkert á blikuna, kallaði á kallana niðri á dekki að taka til spúlslönguna og reyna að spúla þau í burtu. Báturinn hörfaði um stundarsakir en sneri svo aftur. Þá tók 150 kílóa, tveggja metra hár stýrimaður Eiríks, Anton Ingvason frá Dalvík, sig til og óð aftur í skut með haglabyssu. ,,Hann stóð þarna vígalegur eins og Rambó með haglabyssuna og reiknaði með að það myndi duga; hann ætlaði náttúrulega aldrei að skjóta nokkurn mann!“
,,Hann ætlaði bara að hræða þá. Það dugði samt ekki neitt þannig hann skaut einu skoti, helvítis maðurinn! Og það var nú ekki mjög vinsælt.“
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinnihér.