Sjálf­stæðis­menn í kröppum dansi: „Ekki hægt að hleypa henni úr rútunni nema í beisli“

Þing­flokkur Sjálf­stæðis­flokksins og að­stoðar­menn eru að ferðast hringinn í kringum landið þessa dagana til að hitta kjós­endur og fá að vita hvað brennur á þeim.

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður Jóns Gunnars­son, er greini­lega með í för en hann skrifar um ferðina á Face­book.

„Þegar það er appel­sínu­gul við­vörun er ekki sniðugt að fara í hring­­ferð um landið. Í þing­­flokki sjálf­­stæðis­manna eru nokkrir í fjaður­vigt. Diljá Mist mun vera 25 kíló í öllum fötum og var því ekki hægt að hleypa henni úr rútunni nema í beisli. Hún var heppin að með í för var yfir­­­maður al­manna­varna og ein­stak­­lega lipur að­­stoðar­­maður hans,“ skrifar Brynjar.

„Um­­hverfis­ráð­herra ætti að vera nokkuð hólpin í fár­viðrinu enda bætt tölu­vert á sig. Hann er hins vegar af­­skap­­lega veður­hræddur sem var ekki á­bætandi ofan á lofts­lagskvíðann. Hann liggur því í hnipri aftast í rútunni og neitar að hitta nokkurn mann. Aðrir taka vindinn í fangið og sofa síðan á fundum,“ bætir hann við.

„Diljá og Gulli hafa lagt til að næsta hring­­ferð verði á Tene. Þar sé betra veður og auk þess meiri líkur á að rekast á kjós­endur,“ skrifar Brynjar að lokum.

Fleiri fréttir