Sjáðu samanburðinn: Svona mun verð á áfengi hækka um áramótin – Sláandi munur milli landa

Fréttablaðið birtir í dag samanburð Félags atvinnurekenda á því hvað nokkrar tegundir af sterku áfengi kosta í Fríhöfninni í Keflavík og í fríhafnarverzlunum í nokkrum nágrannalöndum - og hvernig verðið í Keflavík mun breytast með boðaðri hækkun á áfengissköttum um áramót.

Ólafur Stephensen, formaður Félags atvinnurekenda, gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af samanburðinum.

Ólafur er þeirrar skoðunar að boðaðar breytingar á áfengissköttum muni skila litlu fyrir ríkissjóð.

„Sú tillaga virðist stórlega vanhugsuð, því að íslenzka ríkið mun ekki hafa miklar tekjur af sölu áfengis á Heathrow eða í Kastrup - en þangað munu viðskiptin að sjálfsögðu færast þegar Fríhöfnin verður verðlögð út af markaðnum. Niðurstaðan verður mjög sennilega tekjutap ríkisins og flugfélögin munu væntanlega kunna fjármálaráðherranum litlar þakkir fyrir öll aukakílóin sem farþegar verða með í handfarangrinum á leið til Íslands.“

Fleiri fréttir