Sjáðu myndbandið: Allt á floti á Keflavíkurflugvelli

Slökkvikerfið á Keflavíkurflugvelli fór í gang í gærkvöldi sem olli því að það rigndi í komusal vallarins.

Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og segir hann að um mikið vatnsmagn hafi verið að ræða.

Fréttablaðið birti myndband sem virðist sýna þennan leka. Þar sést dimmur og tómlegur komusalur Leifsstöðvar þar sem allt er á floti.

Fleiri fréttir