Félagið Brosið Heilsuklinik slf. sem Hrönn Róbertsdóttir tannlæknir fer með 90% hlut í var það samlags- og sameignarfélaga á sviði tannlækninga sem skilaði hæstum hagnaði á síðasta ári samkvæmt samantekt Viðskiptablaðsins.
Hagnaður Brosins nam 116 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári. Launa greiðslur félagsins námu 102 milljónum króna á árinu.
Viðskiptablaðið hefur tekið saman lista yfir 350 afkomuhæstu samlags- og sameignarfélaganna í fyrra flokkað niður í níu atvinnugreinar. Þar á meðal er afkoma 40 félaga tannlækna líkt og sjá má í töflunni hér að neðan.
Úttektin byggir á álögðum tekjuskatti og tryggingargjaldi samkvæmt álagningarskrá lögaðila sem Skatturinn birti í síðustu viku.
Hér að neðan má sjá lista yfir hvaða tannlæknar græddu mest í fyrra.