Sjáðu hvað hóp­upp­sögnin kostar margar milljónir

Á nýrri vef­síður Eflingar kemur fram að hóp­upp­sögn á skrif­stofu fé­lagsins gæti numið 75 milljónum króna. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Póstur var sendur á fé­laga Eflingar í dag. Í honum segir að um­­ræða sem hefur farið fram í fjöl­­miðlum síðustu vikuna hafi á köflum verið „mjög van­stillt og byggð á röngum eða ó­­full­komnum upp­­­lýsingum.“

Einnig kemur fram á vef­síðu Eflingar að breytingarnar séu nauð­­syn­­legar og að það sé „tíma­bært að ráðast í breytingar á úr­­eltum ráðningar­­kjörum.“

„Fremur en að hand­velja eða semja við hvern og einn úr starfs­manna­hópnum er farin sú leið að aug­­lýsa öll störf og hvetja starfs­­fólk til að sækja um,“ segir á síðunni. Sú leið er fag­­leg og skyn­­sam­­leg, að mati Eflingar.

Mark­miðið er ekki að lækka laun starfs­­fólks, heldur séu stöðu­­gildum fækkað. Nýju launa­­kerfi á að vera komið á, það kerfi á að vera gagn­­særra. Það vekur þó at­hygli að neðar á síðunni segir að minnkun á launa­­kostnaði til lengri tíma geti numið allt að 120 milljónum.

„Þótt hóp­­upp­­­sögn sé við­­kvæmt mál þá hefur verið staðið rétt og lög­­lega að henni og réttindi allra starfs­manna eru virt“ þegar spurt er um hóp­­upp­­­sögnina. Efling hefur gagn­rýnt hóp­­upp­­­sagnir at­vinnu­rekanda í til­­vikum þar sem þær voru fram­­kvæmdar til að koma sér hjá launa­hækkunum.

„Efling mun á­­fram bjóða sínu starfs­­fólki góð og sann­­gjörn kjör í fullu sam­ræmi við kjara­­samninga og þær breytingar sem upp­­­sagnirnar eru liður í eru bæði nauð­­syn­­legar og raun­veru­­legar.“

Þá kemur einnig fram að þeim starfs­mönnum sem var sagt upp var bent á að leita að­stoðar hjá Eflingu eða VR. „Starfs­­mönnum sem eru fé­lags­­menn í Eflingu stendur til boða að fá sömu að­­stoð og aðrir fé­lags­­menn í sams konar til­­viki hjá öðrum at­vinnu­rekanda“.

Nú er einnig gerð sú krafa að allir starfs­menn Eflingar verði að geta talað bæði ís­lensku- og ensku. Það sé gert til þess að allir starfs­­menn geti þjónað fé­lags­­menn.

Fleiri fréttir