Sjáðu hvað Hannes fann í Sara­­sota

Hannes Hólm­steinn Gissurar­son er staddur í borginni Sara­sota í Flórída­fylki þessa dagana, en hann gerði merkan fund á bar nokkrum á dögunum.

Í stöðu­upp­færslu á sam­fé­lags­miðlinum Face­book sagði hann að á Ritz-Carlton Beach Club væri notað Reyka vodka í hana­stélin, en Reyka er eitt vin­sælasta ís­lenska vodkað.

Magnús Er­lends­son skrifar at­huga­semd og segir: Frá­bært! Trúi ekki öðru en þú hafir fengið þér að smakka!!“

Sem Hannes svaraði: „Já, þrjú glös, tveimur of mörg.“

Fleiri fréttir