Sirrý finnur til með Steinunni: „Hversu mikið á ein manneskja að missa?“ – Reynir að lifa á 16 þúsund krónum á mánuði

Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir segir frá því þegar hún fór og heimsótti Steinunni Jakobsdóttir fyrir tólf árum, en Steinunn kom fram í viðtali hjá Fréttablaðinu um daginn og lýsti því hvernig hún reynir að lifa á sextán þúsund krónum á mánuði.

„Heimsóknin var ógleymanleg því heima hjá henni var svo mikið líf og fjör,“ skrifar Sirrý á Facebook-síðu sína. Steinunn fékk stuttu síðar heilablóðfall og notar hjólastól í dag. Hún er 45 ára í dag, eftir að hafa greitt alla reikninga á hún einungis sextán þúsund krónur til þess að lifa út mánuðinn.

Sirrý lýsir því hvernig hún lifði áður en hún fékk heilablóðfall. „Steinunn Jakobsdóttir var fjölskyldukona með tvö myndarleg börn sem voru að teikna og lita í stofunni innan um hunda, ketti, fugla og úti í garði voru lögregluhundar sem voru í þjálfun hjá sambýlismanni Steinu. Hún vann úti og rak líka litla verslun með gæludýrafóður í Mosfellsbæ,“ skrifar Sirrý og segir það hafa verið svo skemmtilegt að koma inn á þetta líflega heimili.

„Steina hefur sýnt mikinn dugnað að búa ein í íbúð í Mosfellsbæ í mörg ár. Það mun kosta samfélagið miklu meira ef hún missir íbúðina,“ skrifar Sirrý og spyr sjálfa sig hvar Steinunn á að búa ef hún missir íbúðina.

„Móðir sem fær heilablóðfall og lamast 27 ára á ekki að þurfa að biðja um mat og missa heimilið sitt á miðjum aldri. Hversu mikið á ein manneskja að missa?“

Sirrý segir málið snúast um „Computer says no“ og hún skorar á bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun að finna smugu, opna nýjar leiðir og laga þetta.

Fleiri fréttir